|
|||
2024-08-15 10:30:00 CEST 2024-08-15 10:30:00 CEST REGULATED INFORMATION Alvotech S.A. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLyfjastofnun Evrópu tekur til umsagnar umsókn um markaðsleyfi fyrir AVT06, fyrirhugaða líftæknilyfjahliðstæðu við Eylea
Alvotech (NASDAQ: ALVO) og samstarfsaðili þess, alþjóðlega lyfjafyrirtækið Advanz Pharma tilkynntu í dag að Lyfjastofnun Evrópu (EMA) hafi samþykkt að taka til umsagnar umsókn um markaðsleyfi fyrir AVT06, sem er fyrirhuguð líftæknilyfjahliðstæða Alvotech við Eylea (aflibercept). Markaðsleyfi í Evrópu gæti verið veitt á þriðja ársfjórðungi 2025. „Samþykki EMA færir okkur skrefi nær því að sala hefjist á AVT06 í Evrópu, sem eru frábærar fréttir fyrir sjúklinga og meðferðaraðila,“ sagði Joseph McClellan framkvæmdastjóri rannsókna hjá Alvotech. „Árangur okkar í þróun fjölda líftæknilyfjahliðstæða samhliða, sýnir hvernig Alvotech getur hagnýtt þá fullkomnu aðstöðu sem félagið býr yfir til þróunar og framleiðslu, til að auka aðgengi að hagkvæmum líftæknilyfjum.“ „Þetta er mikilvægur áfangi í þróun fjölbreyttari meðferðarúrræða fyrir sjúklinga og sýnir áherslu Advanz Pharma á aukið aðgengi í Evrópu að lyfseðilsskyldum lyfjum, stungu- og innrennslislyfjum og lyfjum við sjaldgæfum sjúkdómum,“ sagði Dr. Nick Warwick, framkvæmdastjóri rannsókna hjá Advanz Pharma. Alvotech ber ábyrgð á að þróa og framleiða AVT06. Advanz Pharma ber ábyrgð á skráningu lyfsins og hefur einkarétt til markaðssetningar í Evrópu, að undanskildu Þýskalandi og Frakklandi þar sem rétturinn er sameiginlegur. Franska lyfjafyrirtækið Biogaran hefur sameiginlegan rétt til markaðssetningar í Frakklandi. Alvotech vinnur einnig að þróun AVT29, fyrirhugaðrar líftæknilyfjahliðstæðu við Eylea í háum styrk (8 mg). Advanz Pharma og Biogaran hafa einnig leyfi til að markaðssetja AVT29, á viðkomandi mörkuðum. Eylea (aflibercept) er líftæknilyf sem notað er til meðferðar við augnsjúkdómum sem geta leitt til sjóntaps eða blindu, svo sem votri augnbotnahrörnun, sjóndepilsbjúgi og sjónukvilla af völdum sykursýki. Á síðasta ári námu tekjur af sölu Eylea í Evrópu um 2,9 milljörðum Bandaríkjadala (400 milljörðum króna) en tekjur af sölu lyfsins voru 5,9 milljarðar dollara (815 milljarðar króna) á heimsvísu, samkvæmt upplýsingum úr ársuppgjöri Regeneron. Í janúar sl. kynnti Alvotech jákvæðar niðurstöður klínískrar rannsóknar sem sýndu sambærilega klíníska virkni, öryggi og ónæmingarverkun AVT06 og samanburðarlyfsins Eylea, í sjúklingum með aldurstengda vota augnbotnahrörnun (AMD). Aðalendapunktur rannsóknarinnar var uppfylltur. Um AVT06/AVT29 (aflibercept) Heimildir Notkun vörumerkja Um Alvotech Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið
|
|||
|