|
|||
2014-03-18 13:24:12 CET 2014-03-18 13:24:42 CET REGULATED INFORMATION FAST-1 slhf. - FyrirtækjafréttirYfirlýsing FAST-1 slhf. vegna útgáfu nýs flokks skuldabréfaEigendur skuldabréfa í flokknum FAST-1 12 1 hafa veitt félaginu heimild til að gefa út nýjan flokk skuldabréfa, að nafnverði kr. 9.345.052.917, í tengslum við kaup félagsins á HTO ehf., sbr. kaflann um sérstakar skuldbindingar. Hin nýju skuldabréf skulu vera samhljóða skuldabréfaflokknum FAST-1 12 1. Skuldabréfin verða að nafnverði samtals kr. 9.345.052.917, með 113 jöfnum afborgunum, verðtryggð með grunnvísitölu 395,1 stig, fyrsta vaxtadag 15. mars 2014, og lokagjalddaga 15. júní 2042. Skilmálar nýju skuldabréfanna skulu vera þeir sömu og skilmálar skuldabréfaflokksins FAST-1 12 1, að öðru leyti en því að stefnt skal að því að taka hann til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq OMX Iceland hf innan 6 mánaða frá útgáfu. Eigendur hinna nýju skuldabréfa skulu njóta sömu réttinda og eigendur skuldabréfaflokks FAST-1 12 1 m.t.t. trygginga, afborgana, vaxta, verðbóta o.fl. Frekari upplýsingar veitir Haukur Skúlason, stjórnarformaður FAST-1, s: 844 4778 og haukur@islandssjodir.is [HUG#1769505] |
|||
|