|
|||
2014-03-18 13:25:33 CET 2014-03-18 13:25:41 CET REGULATED INFORMATION FAST-1 slhf. - FyrirtækjafréttirTilkynning vegna kaupa FAST-1 slhf. á HTO ehf.Í dag hefur verið gengið frá kaupum FAST-1 slhf. á öllu hlutafé í HTO ehf. Samhliða kaupunum var hlutafé FAST-1 hækkað um 5.318.964.275 hluti að nafnvirði á genginu 1.00. Við kaup FAST-1 slhf. á HTO ehf. tæplega fimmfaldast verðmæti fjárfestingaeigna FAST-1 og væntar tekjur aukast ennfremur allt að fimmfalt. HTO ehf. er eigandi að eignunum við Borgartún 12-14 og Katrínartún 2 og er heildarflatarmál eignanna tæplega 57 þúsund fermetrar að bílastæðakjallara meðtöldum, en fyrir kaupin voru alls rúmlega 17 þúsund fermetrar í eigu FAST-1. Frekari upplýsingar veitir Haukur Skúlason, stjórnarformaður FAST-1, s: 844 4778 og haukur@islandssjodir.is [HUG#1769504] |
|||
|