2009-05-29 18:28:36 CEST

2009-05-29 18:29:35 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Exista hf. - Fyrirtækjafréttir

- Skuldabréf á gjalddaga 29. maí 2009


Eins og fram kom í tilkynningu til Kauphallar 1. mars 2009, hyggst Exista leita
samkomulags við handhafa skráðra skuldabréfa og víxla félagsins um frestun
afborgana og vaxtagreiðslna sem koma til gjalddaga á meðan á viðræðum stendur
við innlendar og erlendar fjármálastofnanir um endurskoðun lánasamninga og
uppgjör gagnkvæmra krafna. Þar sem viðræður standa enn yfir mun félagið ekki
greiða afborgun af skuldabréfum EXISTA 07 2 sem er á gjalddaga í dag, 29.
maí 2009.