2016-02-11 16:37:06 CET

2016-02-11 16:37:06 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjaneshöfn - Fyrirtækjafréttir

Fjármál Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar


Reykjanesbær hefur á grundvelli samkomulags við innanríkisráðherra, átt í
viðræðum við helstu kröfuhafa sveitarfélagsins með það að markmiði að
endurskipuleggja fjárhag sveitarfélagsins. Samkomulagið við innanríkisráðherra
er frá 15. desember 2015 og gildir til 31. desember 2016. Samkomulagið kemur í
stað eldra samkomulags um sama efni frá 30. desember 2014 sem gilti til 31.
desember 2015. Markmið samkomulagsins eru eftirfarandi: 


a) Að stuðla að því að sjálfbærni náist í rekstri Reykjanesbæjar á árinu 2016 í
samræmi við 1. mgr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga. 

b) Að stuðla að áframhaldandi markvissri vinnu við fjárhagslega
endurskipulagningu og hagræðingu í rekstri Reykjanesbæjar svo að fjárhagslegum
viðmiðum sveitarstjórnarlaga verði náð. 



Viðræður við kröfuhafa Eignarhaldsfélagsins Fasteignar ehf. (EFF) hafa staðið
yfir frá því í mars 2015. EFF er stærsti einstaki kröfuhafi Reykjanesbæjar. Þær
skuldbindingar sem Reykjanesbær hefur gagnvart EFF eru tryggðar með veði í þeim
fasteignum sem Reykjanesbær leigir af EFF. 

Nú liggur fyrir ákveðin niðurstaða þeirra viðræðna eins og greint var frá í
tilkynningu Reykjanesbæjar til Kauphallar Íslands þann 5. febrúar sl. Í þeirri
tilkynningu kom fram að viðræður Reykjanesbæjar við kröfuhafa EFF, þ.e. Glitni
HoldCo ehf. f.h. Ríkisjóðs Íslands, Landsbankann hf. og Íslandsbanka hf., hafi
skilað árangri og aðilar hafi sammælst um umfang skuldavanda sveitarfélagsins.
Þá var tilkynnt að vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu Reykjanesbæjar og
stofnana bæjarins yrði haldið áfram og að rætt yrði við aðra kröfuhafa bæjarins
á grundvelli þeirra forsendna sem sammælst var um við kröfuhafa  EFF. 

Eðlilegt er á þessum tímamótum að ræða nánar við kröfuhafa Reykjaneshafnar  og
kynna nánar skuldavandann, forsendur sem ræddar hafa verið við EFF og mögulegar
leiðir að fjárhagslegri endurskipulagningu sveitarfélagsins og stofnana þess.
Kröfuhafar Reykjaneshafnar eru næst stærsti hópur kröfuhafa Reykjanesbæjar og
stofnana hans. 

Í tilkynningu Reykjaneshafnar dags. 1. febrúar 2016 kom fram að kröfuhafar
Reykjaneshafnar sem ættu skuldbindingar sem væru fallnar á gjalddaga hefðu
samþykkt að veita greiðslufrest og kyrrstöðutímabil til og með 15. febrúar
2016. 

Fyrir liggur að ekki næst að kynna kröfuhöfum Reykjaneshafnar stöðu
Reykjanesbæjar og stofnana hans og þá vinnu sem átt hefur sér stað í viðræðum
við EFF innan þeirra tímamarka. Í ljósi þess mun Reykjaneshöfn óska eftir
framlengdum greiðslufresti og kyrrstöðutímabili til 15. mars 2016. Til að liðka
fyrir áframhaldandi viðræðum hafa kröfuhafar EFF samþykkt að veita sambærilegan
greiðslufrest á leigugreiðslum meðan viðræður við kröfuhafa Reykjaneshafnar
standa yfir. Fram til þessa hefur Reykjanesbær staðið í skilum við EFF en
félagið hefur veitt verulegan greiðslufrest á mánaðarlegum leigugreiðslum. 



Með kveðju,

Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri / harbour master,
Reykjaneshöfn / Port of Reykjanes,
Víkurbraut 11,  230 Reykjanesbæ, sími: 420-3220, fax: 420-3229