2010-09-30 17:31:01 CEST

2010-09-30 17:31:59 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Fjármögnun ríkissjóðs vegna Íbúðalánasjóðs og sparisjóðanna


Fyrir liggur að ríkissjóður þurfi að styrkja eiginfjárstöðu Íbúðalánasjóðs og
stendur mat á fjárþörf nú yfir.  Þá er einnig unnið að fjárhagslegri
endurskipulagningu sparisjóðanna. Gert er ráð fyrir að fjárþörf þeirra verði í
takti við fyrri áætlanir. Stefnt er að því að þessum verkefnum verði lokið
fyrir næstkomandi áramót. 

Fjármögnun verður með sambærilegum hætti og gilti um aðrar fjármálastofnanir
árið 2009. Þetta mun því ekki hafa áhrif á áður tilkynnta áætlun um útgáfu
markflokka ríkisverðbréfa á árinu 2010.