|
|||
2022-08-11 11:38:00 CEST 2022-08-11 11:38:09 CEST REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarNiðurstaða úr skuldabréfaútboði ReykjavíkurborgarReykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVKNG 40 1. Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 1.540 m.kr. í flokkana. Heildartilboð í RVK 32 1 voru samtals 1.455 m.kr. að nafnvirði á bilinu 1,89% - 1,99%. Ákveðið var að taka öllum tilboðum, samtals að nafnvirði 1.455 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,99%. Útistandandi fyrir útboð voru 19.693 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 21.148 m.kr. að nafnverði. Heildartilboð í RVKNG 40 1 voru samtals 85 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 6,7%. Ákveðið var að hafna öllum tilboðum. Uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 16. ágúst 2022. Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu. Nánari upplýsingar veitir: Helga Benediktsdóttir |
|||
|