|
|||
2010-07-30 13:31:12 CEST 2010-07-30 13:32:12 CEST REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - FyrirtækjafréttirMoody‘s lækkar lánshæfiseinkunn LandsvirkjunarÍ dag breytti alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's Investor Service horfum fyrir lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar úr stöðugum í neikvæðar. Lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar hjá Moody's er nú Baa3 (negative outlook) og er hún í fjárfestingaflokki þrátt fyrir þessa breytingu á horfum. Fram kemur í fréttatilkynningu Moody's að breytingin endurspeglar samskonar breytingu sem fyrirtækið gerði á lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins. Að mati Landsvirkjunar hefur breytingin engin áhrif á stöðu fyrirtækisins almennt né útistandandi skuldabréfaflokka. |
|||
|