2009-01-30 15:20:21 CET

2009-01-30 15:21:17 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hf. Eimskipafélag Íslands - Fyrirtækjafréttir

Nánari skýring á launum forstjóra félagsins fyrir reikningsárið 2008


Misskilnings hefur gætt í umfjöllun um ársreikning félagsins fyrir
reikningsárið 2008 í fréttum um afkomu félagsins. 

Laun forstjóra félagsins skulu skoðast í samræmi við uppgjörsár félagsins sem
er frá nóvember til október ár hvert. 

Gylfi Sigfússon forstjóri hf. Eimskipafélagsins tók við starfi forstjóra í maí
á síðasta ári, en þar áður hafði hann starfað hjá félaginu í Norður-Ameríku í
12 ár og undir það síðasta starfaði  hann sem  framkvæmdastjóri Eimskips í
Bandaríkjunum og Kanada. Nýr launasamingur var gerður við Gylfa þegar hann tók
við nýrri stöðu innan félagsins sem forstjóri þess. Við samningsgerð voru
heildarlaun Gylfa 2,7 milljónir á mánuði. Þar sem fjölskylda Gylfa býr í
Bandaríkjunum og illmögulegt fyrir hana að flytja til Íslands vegna skólagöngu
barna var launagreiðslum skipt á milli Íslands og Bandaríkjana miðað við gengi
þess tíma. Engir samningar eru við Gylfa um bónus- eða kauprétti. Gylfi tók á
sig 10% launalækkun eins og aðrir starfsmenn félagsins þann 1. desember þegar
ljóst var að ráðast þyrfti í aðgerðir til að lækka kostnað. Uppgefin laun eru
heildarlaun Gylfa, þar með talin laun frá því þegar hann starfaði fyrir Eimskip
í Bandaríkjum. 

Stefán Ágúst Magnússon starfaði sem fjármálastjóri félagsins þar til hann tók
tímabundið við stöðu forstjóra í febrúar 2008 og gegndi þeirri stöðu þar til í
maí, en þá tók hann aftur við stöðu fjármálstjóra þar til hann lét af störfum í
október 2008.  Launagreiðslur til Stefáns í íslenskum krónum fyrir
reikningsárið 2008, ekki eingöngu sem forstjóra, námu 67 milljónum og þar af
námu bónusgreiðslur 18 milljónum. 

Baldur Guðnason starfaði sem forstjóri félagsins til febrúar 2008 þegar hann
lét af störfum. Við starfslok Baldurs var gerður við hann starfslokasamningur
sem byggður var á ráðningarsamningi hans frá 2007, sem gerður var við Baldur af
þáverandi stjórnarformanni. Starfslokasamningurinn gerir ráð fyrir greiðslum að
fjárhæð 50.000 Evra á mánuði í tvö ár.  Í maí 2008 taldi stjórn
Eimskipafélagsins að full ástæða væri til að skoða viðskilnað Baldurs við
félagið, en þá hafði meðal annars komið fram alvarleiki rekstrarvandans og voru
þá allar greiðslur til Baldurs stöðvaðar.  Í kjölfarið stefndi Baldur félaginu
og er það mál nú fyrir dómstólum. Telur félagið meðal annars að forsendur sé
brostnar fyrir öllum bónus- og starfslokagreiðslum. Launagreiðslur Baldurs námu
58 milljónum á reikningsári félagsins 2008 í sex mánuði og þar af nam
bónusgreiðsla 30 milljónum króna. 

Skal haft í huga að ársreikningur er í evrum og meðalgengi ársins er 114
íslenskar krónur.