|
|||
2015-11-12 17:33:53 CET 2015-11-12 17:34:53 CET REGLERAD INFORMATION Reitir fasteignafélag hf. - FyrirtækjafréttirREITIR: Niðurstaða dómsmáls um nýtingu kaupréttarNiðurstaða héraðsdóms Reykjavíkur í máli varðandi nýtingu Íslandshótela hf. á kauprétti í leigusamningi við Reiti liggur nú fyrir, en samkvæmt dómi sem felldur var í dag var kaupréttur Íslandshótela hf. á fasteigninni að Aðalstræti 16 í Reykjavík talinn gildur. Reitir hafa ákveðið að áfrýja dóminum til Hæstaréttar sem veldur töfum á mögulegu uppgjöri. Söluverð fasteignarinnar væri um 2,5 milljarðar króna og myndi greiðast með reiðufé. Myndi sala eignarinnar leiða til óverulegra áhrifa á fjárhag Reita en rekstrarhagnaður af eigninni er um 175 milljónir króna á ársgrundvelli. Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 660 3320 og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416. |
|||
|