2015-11-13 16:57:02 CET

2015-11-13 16:58:02 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Ríkisútvarpið ohf. - Fyrirtækjafréttir

Ríkisútvarpið ohf. móttekur greiðslu vegna byggingarréttar og greiðir niður skuldir


Í dag barst Ríkisútvarpinu ohf. innborgun vegna sölu byggingarréttar á hluta
lóðar félagsins við Efstaleiti að upphæð 800 milljónir króna. Fjármunirnir er
nýttur til niðurgreiðslu skulda félagsins. 

Eins og fram kom í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar þann 13. október
sl., er sala byggingarréttar mikilvægur áfangi í fjárhagslegri
endurskipulagningu Ríkisútvarpsins ohf. Áætlað er að ávinningur sölunnar í
heild verði a.m.k. 1,5 milljarðar króna en hann ræðst af endanlega samþykktu
deiliskipulagi. Nú er unnið að deiliskipulagi lóðarinnar á grundvelli
vinningstillögu Arkþings um skipulag svæðisins. Kaupsamningurinn er gerður með
fyrirvara um að ráðstöfunarheimild Ríkisútvarpsins yfir öllum lóðarréttindunum
verði staðfest í samræmi við ákvæði þar um í fjáraukalögum fyrir árið 2015. 

Í tilkynningum haustsins kom jafnframt fram að meðal hagræðingaaðgerða síðustu
mánaða er endurskipulagning húsnæðismála RÚV, sem hefur minnkað við sig húsnæði
í Útvarpshúsinu og leigt frá sér 2.750 fm til annarrar starfsemi. Þar kom
einnig fram að nýlegt árshlutauppgjör félagsins sýnir jákvæðan viðsnúning í
rekstri og að hagræðingaraðgerðir félagsins hafa skilað sér. Afkoma á
tímabilinu 1.9.2014-31.8.2015 skilaði félagið hagnaði upp á 30,5 milljónir
króna en tap ársins á undan (2013-2014) var 271 milljón króna eftir skatta.
Rekstrarkostnaður lækkaði um 4,3% að raunvirði milli rekstrarára þrátt fyrir að
kostnaður við dreifingu hækki á milli ára á grundvelli  samnings um stafræna
dreifingu frá árinu 2013.