|
|||
2009-03-03 12:58:56 CET 2009-03-03 12:59:59 CET REGULATED INFORMATION Sparisjóður Mýrasýslu - Fyrirtækjafréttir- Sparisjóður Mýrasýslu framlengir samningi um kyrrstöðutímabil (standstill) við helstu lánardrottna félagsins til 1. apríl.Sparisjóður Mýrasýslu hefur um nokkurn tíma unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu sjóðsins eftir að ljóst varð að ekki yrði af samningi við Kaupþing banka hf. í kjölfar hruns íslensku viðskiptabankanna. Í nóvember 2008 undirrituðu Nýi Kaupþing banki hf. og Borgarbyggð samkomulag um kaup bankans á öllu stofnfé Sparisjóðs Mýrasýslu. Kaupin eru háð því að samningar náist við lánardrottna um fjárhagslega endurskipulagningu sjóðsins auk þess sem fyrirvari er gerður um samþykki Fjármálaeftirlits og Samkeppniseftirlits. Þann 27. janúar sl. undirritaði sparisjóðurinn samkomulag við alla helstu lánardrottna sína, innlenda sem erlenda, þess efnis að lánadrottnar skuldbinda sig til að gjaldfella ekki lán sparisjóðsins innan tilskilins frests sem er til 2. mars næstkomandi. Samkomulaginu hefur verið framlengt til 1. apríl næstkomandi við alla lánadrottna utan einn en gert er ráð fyrir að ljúka samningum við hann á næstu dögum. Áfram gildir að höfuðstóll lána verður ekki greiddur á tímabilinu og heldur ekki vextir af víkjandi lánum. Sparisjóðurinn mun hins vegar greiða vexti af öðrum lánum, eftir því sem við á, á kyrrstöðutímabilinu og samkomulagið hefur ekki áhrif á stöðu sparifjáreigenda eða þeirra sem eiga almennar viðskiptakröfur á sparisjóðinn. Eigendur skuldabréfa sem tekin hafa verið til viðskipta í kauphöll eru ekki aðilar að þessu samkomulaginu en stefnt er að þátttöku þeirra í fjárhagslegri endurskipulagningu. Þegar hefur verið samið við einn eiganda útgefinna bréfa að fresta gjalddaga bréfana og vonast er til að fleiri komi að málinu á síðari stigum þess. Sparisjóður Mýrasýslu hefur eins og komið hefur fram átt í viðræðum við lánardrottna um nokkurn tíma vegna stöðu sjóðsins og eru sparisjóðsstjóri og stjórn sparisjóðsins eru bjartsýnir á að samningar muni nást um fjárhagslega endurskipulagningu. Undiritun samkomulags við lánardrottna er jákvætt skref í átt að því að tryggja framtíðarrekstur sparisjóðsins og að tryggja hagsmuni viðskiptavina og annarra hagsmunaaðila. Frekari upplýsingar veitir: Bernhard Þór Bernhardsson Sparisjóðsstjóri Sími: 4307500 Netfang: bernhard@spm.is |
|||
|