|
|||
2009-01-28 17:27:19 CET 2009-01-28 17:28:20 CET REGULATED INFORMATION Landsvaki - Fyrirtækjafréttir- Staða Fyrirtækjabréfa Landsbankans og opnun Skuldabréfasjóðs LandsbankansFjármálaeftirlitið hefur nú staðfest nýjar reglur Landsvaka fyrir Fyrirtækjabréf Landsbankans. Þessar reglur miða að því að tryggja jafnræði allra hlutdeildarskírteinishafa þannig að allir fái greitt hlutfallslega úr sjóðnum í samræmi við eign sína. Í framhaldi af þessu verður hlutdeildarskírteinishöfum greitt það reiðufé sem innheimtist inn á vörslureikning samhliða vaxtagjalddögum og lokagjalddögum eigna sjóðsins, sem og það reiðufé sem fæst með sölu á eignum sjóðsins. Ekki er gert ráð fyrir að sjóðurinn verði opnaður fyrir innlausnir að nýju enda er um er að ræða aðgerðir sem munu leiða til slita á sjóðnum þegar öllum eignum hans hefur verið ráðstafað til hlutdeildarskírteinishafa í samræmi við það sem að framan greinir. Reglubreytingarnar eru gerðar á grundvelli 2. mgr. 12. gr. laga nr. 30/2003. Sjóðfélagar fá sent bréf á næstu dögum til nánari útskýringa á stöðu Fyrirtækabréfa ásamt nýjum reglum sjóðsins. Þann 14. október var opnað fyrir viðskipi með Skuldabréfasjóða Landsbankans en þann dag var tilkynnt var um opnun sjóðsins á vef Landsbankans. Sjóðurinn fjárfestir einungis í ríkistryggðum verðbréfum (spariskírteinum, húsbréfum, íbúðabréfum, ríkisbréfum og ríkisvíxlum). |
|||
|