|
|||
2009-11-12 18:30:03 CET 2009-11-12 18:31:56 CET REGULATED INFORMATION Össur hf. - FyrirtækjafréttirLeiðrétting: röng dagsetning í fyrri tilkynningu - Nýr samningur um viðskiptavakt við Saga CapitalFréttatilkynning frá Össuri hf. 12. nóvember 2009, GMT:17:00 Nýr samningur um viðskiptavakt við Saga Capital Össur hf. hefur gert nýjan samning við Saga Capital Fjárfestingabanka hf. um viðskiptavakt sem er endurnýjun á fyrri samningi frá apríl 2008. Þessi samningur er einungis vegna skráningar félagsins á Íslandi. Samkvæmt samningnum mun Saga Capital sjá um markaðsvakt á bréfum félagsins á NASDAQ OMX á Íslandi. Saga Capital mun setja fram kaup- og sölutilboð alla viðskiptadaga í viðskiptakerfi NASDAQ OMX á Íslandi. Upphæð hvers tilboðs skal að lágmarki vera 20.000 hlutir á gengi sem Saga Capital ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur milli kaup- og söluverðs má ekki fara yfir 2,0% og breyting frá síðasta verði skal ekki vera meira en 3,5%. Saga Capital ber skyldu til að bjóða allt að 100.000 hluti á hverjum viðskiptadegi. Samningnum er ætlað að auka viðskipti með hlutabréf Össurar í kauphöll NASDAQ OMX á Íslandi og stuðla að skilvirkri og gegnsærri verðmyndun á hlutabréfum félagsins. Nánari upplýsingar veita: Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, sími 515 1300 Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664 1044 |
|||
|