|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||
2024-09-16 11:22:26 CEST 2024-09-16 11:22:26 CEST REGULATED INFORMATION Nova Klúbburinn hf. - Changes in company's own sharesNova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 37Í 37. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.686.000 eigin hluti að kaupverði 9.899.320 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025. Nova Klúbburinn átti 51.782.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 54.468.000 hluti, eða um 1,48% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 208.205.600 kr. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir. Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||
|