2022-01-24 22:19:30 CET

2022-01-24 22:19:30 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Boðun hluthafafundar

Tilnefningarnefnd Reita fasteignafélags hf. auglýsir eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar


Tilnefningarnefnd Reita auglýsir eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar félagsins vegna aðalfundar sem haldinn verður 11. mars 2022.

Í því skyni að fá umfjöllun tilnefningarnefndar um tilnefningar eða framboð til stjórnar er áhugasömum bent á að fylla út form sem finna má vefsíðu félagsins, www.reitir.is, og senda nefndinni eigi síðar en 3. febrúar 2022 á netfangið tilnefningarnefnd@reitir.is.

Farið verður með allar persónuupplýsingar sem tilnefningarnefnd berast sem trúnaðarmál og í samræmi við reglur um persónuvernd. Tillaga nefndarinnar um val á stjórnarmönnum verður birt samhliða boðun aðalfundar eða í síðasta lagi þremur vikum fyrir aðalfund. Önnur framboð verða birt sex sólarhringum fyrir aðalfund. Einstaklingur sem nefndin gerir ekki tillögu um sem stjórnarmann í félaginu getur ávallt gefið kost á sér til stjórnarsetu með því að skila inn formi framboðs til stjórnar innan hins almenna framboðsfrests samkvæmt samþykktum Reita, þ.e. sjö sólarhringum fyrir aðalfund.

Form vegna umfjöllunar í tilnefningarnefnd eða framboðs til stjórnar má finna á vefsíðu félagsins, www.reitir.is.

Tilnefningarnefnd Reita fasteignafélags hf.