2015-04-29 17:41:17 CEST

2015-04-29 17:42:17 CEST


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Rangárþing ytra - Ársreikningur

Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2014


Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2014 var lagður fram til fyrri umræðu
í  sveitarstjórn miðvikudaginn 29. apríl 2015 og vísað til síðari umræðu og
afgreiðslu í sveitarstjórn í samræmi við sveitarstjórnarlög. 

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem
falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir
alla starfsemi þess. það er A og B hluta sbr. 60 gr. sveitastjórnarlaga nr.
138/2011. 

Í A hluta er starfsemi sem að hluta, eða öllu leyti er fjármögnuð með
skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B
hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru
í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með
þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar
íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Húsakynni b.s. og Suðurlandsvegur 1-3 ehf. 

Samkvæmt rekstrarreikningi 2014 námu rekstrartekjur A og B hluta 1.360,7 millj.
kr. samanborið við 1.231,4 millj. kr. árið 2013. Hækkun milli ára er 10,5%. 

Rekstrargjöld A og B hluta eru laun, annar rekstarkostnaður og afskriftir sem
námu samtals 1.173,8 millj.kr., en voru 1.038,3 millj. kr. á árinu 2013. Hækkun
frá fyrra ári nemur 13,1%. 

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2014 námu 79 millj. kr.
samanborið við 86,5 millj. kr. árið 2013. Rekstrarniðurstaða ársins er því
jákvæð um 109,1 millj. kr. fyrir A og B hluta samanborið við 115 millj. kr. á
árinu 2013.