|
|||
![]() |
|||
2015-04-29 19:40:52 CEST 2015-04-29 19:41:41 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Íslandsbanki lýkur víxlaútboðiÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 5 og 6 mánaða. Hver flokkur getur að hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði. Tilboðum var tekið fyrir 560 m. kr. Seldir voru víxlar í flokki ISLA 15 1015 að nafnvirði 440 m. kr. á kröfunni 5,25% (verð 97,7059) og í flokki ISLA 15 1106 að nafnvirði 120 m. kr. á kröfunni 5,25% (verð 97,4006). Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 2,94 ma. kr. Heildareftirspurn í útboðinu var 680 m. kr. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 7. maí næstkomandi, með auðkennunum ISLA 15 1015 og ISLA 15 1106. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752/ 844 4752. * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 844 3678. [HUG#1916944] |
|||
|