2010-05-04 16:23:37 CEST

2010-05-04 16:24:37 CEST


REGLERAD INFORMATION

Isländska
Reykjavíkurborg - Ársreikningur

Ársreikningur 2009


Borgarsjóður rekinn hallalaus og veruleg umskipti til hins betra í rekstri
samstæðunnar samkvæmt ársreikningi Reykjavíkurborgar fyrir árið 2009:

„Mikil og góð tíðindi fyrir Reykvíkinga,“ segir borgarstjóri.

Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2009 er lagður fram á
borgarstjórnarfundi í dag. Samkvæmt honum var borgarsjóður rekinn hallalaus og
veruleg umskipti urðu til hins betra í rekstri samstæðunnar. 

„Þetta eru mikil og góð tíðindi fyrir Reykvíkinga,“ segir Hanna Birna
Kristjánsdóttir, borgarstjóri. „Ársreikningurinn staðfestir mikinn árangur og
sýnir í hnotskurn þá ábyrgu fjármálastjórn sem Reykjavíkurborg hefur ástundað á
síðasta ári,“ segir Hanna Birna. „Borgarsjóður er rekinn hallalaus og
hagræðingaraðgerðir hafa skilað árangri.Við höfum með samstilltu átaki náð
nægjanlegum sparnaði til að geta haldið uppi góðri grunnþjónustu án þess að
þurfa að auka álögur á almenning á þessum erfiðu tímum,“ segir Hanna Birna
ennfremur, en hjá Reykjavíkurborg voru hvorki skattar né gjaldskrár fyrir
grunnþjónustu hækkaðar á árinu. 

Rekstrarniðurstaða borgarsjóðs, A-hluta, var jákvæð um 3,2 milljarða króna árið
2009 (var 2,3 milljarðar árið 2008). Meginástæður þessarar hagstæðu niðurstöðu
eru mikill árangur fagsviða borgarinnar við að ná markmiðum um sparnað og
hagræðingu í rekstri, hærri útsvarstekjur en áætlun gerði ráð fyrir og breyting
lífeyrisskuldbindinga sem lækkaði útgjöld. Þessi niðurstaða náðist þrátt fyrir
að gengisþróun hafi verið óhagstæðari og verðlag hærra en áætlun gerði ráð
fyrir. Rekstrarniðurstaðan lýsir í hnotskurn miklum sveigjanleika og góðu
rekstrarhæfi. 

Veruleg umskipti til hins betra urðu í rekstri samstæðunnar, A og B-hluta,
miðað við árið á undan. Rekstraralli var á samstæðunni um 1,7 milljarðar króna
(en var 71 milljarður árið 2008). Þennan halla má einkum rekja til þess að
gengis- og verðlagsþróun var óhagstæðari en það sem opinberar spár gerðu ráð
fyrir. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir fjármagnsliði var hins vegar
jákvæð um rúmlega 9,7 milljarða sem er betri niðurstaða en árið 2008 og betri
en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Það sýnir að samstæðan öll hefur brugðist
við breyttum  rekstraraðstæðum af miklu afli.

Borgarstjóri segir að þessa góða niðurstöðu megi þakka þeim nýju vinnubrögðum
sem innleidd hafa verið við fjármálastjórnina hjá Reykjavíkurborg.
Fjárhagsáætlunin var unnin í miklu samráði fulltrúa meirihluta og minnihluta í
borgarstjórn en þann 7. október 2008 var samþykkt samhljóða aðgerðaráætlun
vegna aðstæðna í efnahags-og atvinnumálum sem hafði víðtæk áhrif á
fjármálastjórnina og fjárhagsáætlunarvinnu Reykjavíkurborgar fyrir árin 2009 og
2010. Leiðarljós aðgerðaráætlunarinnar var að standa vörð um grunnþjónustuna,
störfin og gjaldskrár og við það hefur verið staðið en starf aðgerðarhópsins
hefur verið leitt af Óskari Bergssyni, formanni borgarráðs. 

Þá var kallað eftir tillögum starfsmanna um bestu lausnir í nauðsynlegum
aðhaldsaðgerðum og voru um 300 tillögur nýttar við endurskoðun áætlunar í mars
2009. Þessar nýjar leiðir í fjárhagsáætlunarvinnunni voru tilnefndar til
verðlauna á vegum Eurocities samtakanna á árinu 2009. Ársreikningurinn
staðfestir árangur af þessum aðgerðum.

Sjá fréttatilkynninu í viðhengi.

Í skýrslu endurskoðenda er áhugaverður samanburður á niðurstöðum ársreikninga
síðustu ára. Öll árin tímabilið 2002-2006 var hallarekstur á A-hluta
borgarsjóðs. Hins vegar hefur verið hallalaus rekstur öll árin 2007-2009 þrátt
fyrir þau miklu efnahagsáföll sem hafa gengið yfir og leitt hafa til minni
skatttekna og verulegrar aukningar velferðarútgjalda - og þrátt fyrir að útsvar
og þjónustugjöld hafi ekki verið hækkuð eins og í flestum öðrum sveitarfélögum. 

Sjá ársreikning Reykjavíkurborgar og skýrslu fjármálaskrifstofu og
endurskoðenda á  www.reykjavik.is

Nánari upplýsingar veitir Magnús Þór Gylfason, aðstoðarmaður borgarstjóra, í
síma 
8995552.