2011-11-04 12:45:53 CET

2011-11-04 12:46:55 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 13 0517 OG RIKB 16 1013


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013 fór fram hjá
Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt
tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa)
ákvarðaði söluverðið. 

                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 13 0517:

Alls bárust 13 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 8.100 m.kr. að nafnverði. 1
tilboði var tekið fyrir 2.000 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 105,100 (3,71%
ávöxtunarkröfu). 

RIKB 16 1013:

Alls bárust 21 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 6.500 m.kr. að nafnverði. 11
tilboðum var tekið fyrir 4.050 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 104,590 (4,93%
ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 8.
nóvember. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 9. nóvember 2011.