|
|||
![]() |
|||
2016-06-13 10:00:37 CEST 2016-06-13 10:00:37 CEST REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Reglubundin tilkynning um kaup Fjarskipta á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 23 keyptu Fjarskipti hf. 400.000 eigin hluti að kaupverði 17.425.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.) ----------------------------------------------------------------------- 6.6.2016 10:23 100.000 43,30 4.330.000 ----------------------------------------------------------------------- 10.6.2016 14:53:34 120.000 43,65 5.238.000 ----------------------------------------------------------------------- 10.6.2016 14:53:47 180.000 43,65 7.857.000 ----------------------------------------------------------------------- Samtals 400.000 17.425.000 Er hér um að ræða kaup Fjarskipta á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 1. júní 2016. Fjarskipti áttu 2.326.577 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 2.726.577 eigin hluti eða sem nemur 1,00% af útgefnum hlutum í félaginu. Fjarskipti hafa keypt samtals 557.877 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,20% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 24.434.739 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 6.734.000 hlutum eða sem nemur 2,5% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið "Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga." Nánari upplýsingar veitir: Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is [HUG#2019690] |
|||
|