|
|||
2016-06-13 11:10:11 CEST 2016-06-13 11:10:11 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki lýkur víxlaútboðiArion banki hf. lauk á föstudag útboði á víxlum til tólf, sex og fimm mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 2.640 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 700 milljónir kr. Seldir voru víxlar til 5 mánaða að nafnverði 560 milljónir á 6,45% flötum vöxtum. Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 140 milljónir á 6,44% flötum vöxtum. Öllum tilboðum í 12 mánaða víxla var hafnað að þessu sinni. Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi í næstu viku. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|