|
|||
2014-08-28 11:00:30 CEST 2014-08-28 11:01:30 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirTímabundin undanþága aðalmiðlara á skyldum á eftirmarkaði.Vegna þeirrar óvissu sem gæti skapast á íslenskum skuldabréfamarkaði í kjölfar ráðgefandi álits EFTA dómstólsins í máli nr. E-25/13 (Gunnar V. Engilbertsson gegn Íslandsbanka hf.) sem birt verður fyrir opnun skuldabréfamarkaðar í dag, hefur Íbúðalánasjóður ákveðið að veita aðalmiðlurum tímabundna undanþágu á skyldum á eftirmarkaði. Þann 28. ágúst eru aðalmiðlara undanþegnir því að leggja fram kaup- og sölutilboð í viðskiptakerfi kauphallarinnar með tilgreindum hámarksmun eins og fram kemur í 3. gr. gildandi samnings í tengslum við útgáfu HFF íbúðabréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Íbúðalánasjóði er heimilt að afturkalla þessa undanþágu að fengu samþykki meirihluta aðalmiðlara sbr. 6. gr. ofangreinds samnings. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Jón Björnsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Íbúðalánasjóði í síma 569 6990. |
|||
|