2013-04-05 13:45:00 CEST

2013-04-05 13:45:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 15 0408 OG RIKB 31 0124


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 15 0408 og RIKB 31 0124 fór fram hjá
Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt
tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa)
ákvarðaði söluverðið. 

                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 15 0408:

Alls bárust 9 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.150 m.kr. að nafnverði. 9
tilboðum var tekið fyrir 5.150 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 99,800 (4,61%
ávöxtunarkröfu). 

RIKB 31 0124:

Alls bárust 25 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 6.890 m.kr. að nafnverði. 24
tilboðum var tekið fyrir 6.790 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 98,250 (6,67%
ávöxtunarkröfu). 



Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 9.
apríl. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 10. apríl 2013.