|
|||
2013-12-03 09:59:04 CET 2013-12-03 09:59:28 CET REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirSíminn gagnstefnir VodafoneÞann 1. nóvember sl. stefndi Vodafone Símanum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til greiðslu skaðabóta vegna brota á samkeppnislögum á árunum 2001 til 2007. Brotin fólust í ofrukkun á lúkningargjöldum sem innheimt voru fyrir hverja talaða mínútu í símtölum sem enduðu í farsímakerfi Símans. Ofgreiðslur Vodafone vegna þessa námu 913 milljónum króna á tímabilinu og krafðist félagið þess að fá þá upphæð endurgreidda auk vaxta. Kröfugerð Vodafone byggir m.a. á niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins og áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Síminn hefur nú gagnstefnt Vodafone fyrir sambærilegan meintan ólögmætan verðþrýsting sem hann telur Vodafone hafa beitt Símann á sama tímabili og ofangreind stefna Vodafone á hendur Símanum nær til. Krafa Símans á hendur Vodafone er með vöxtum að fjárhæð 2,5 milljarðar króna. Sá grundvallarmunur er á stefnum Símans og Vodafone, að stefna Vodafone á hendur Símanum fær stoð í niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins og áfrýjunarnefndar samkeppnismála, en kröfugerð Símans á hendur Vodafone gerir það ekki. Síminn hefur farið þess á leit við dómstóla að málin verði sameinuð í eitt mál. Vodafone ítrekar að óvissa ríkir um niðurstöðu dómsmálsins. Tapi Vodafone dómsmáli þessu mun það hafa neikvæð áhrif á rekstur félagsins en vinni Vodafone málið mun það, líkt og áður hefur komið fram, hafa jákvæð áhrif á fjárhag félagsins. Nánari upplýsingar veitir Hrannar Pétursson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Vodafone. [HUG#1747319] |
|||
|