2013-11-26 12:38:58 CET

2013-11-26 12:39:58 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir varamaður kemur inn í stjórn Regins hf.


Frá og með föstudeginum 29. nóvember mun Guðrún Blöndal láta af störfum í
stjórn Regins hf. Á sama tíma kemur í hennar stað Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir
varamaður í stjórn Regins . 

Hjördís er með BS gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands. Hjördís hefur mikla
stjórnunarreynslu en hún var árin 2010 -2012 framkvæmdastjóri
Endurskipulagningar eigna hjá Landsbankanum ásamt því að leiða sameiningu SP
fjármögnunar og Avant í nýtt svið Landsbankans sem heitir  Bíla- og
tækjafjármögnun Landsbankans.  Hjördís hefur einnig starfað í
Fjármálaráðuneytinu sem ráðgjafi Fjármálaráðherra frá 2009-2010. Stjórn og
stjórnendur Regins bjóða hana velkomna í hópinn. 

Guðrún Blöndal  hefur setið í stjórn Regins frá því í desember 2012.  Guðrún er
að hverfa til annarra starfa og þakkar stjórn og stjórnendur félagins henni
fyrir vel unnin störf fyrir Regin og óskar henni góðs gengis á nýjum
starfsvettvangi. <strong style="font-size: 11pt;">Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 5128900 / 8996262