|
|||
2012-04-13 13:46:00 CEST 2012-04-13 13:46:02 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 14 0314Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 14 0314 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 14 0314: Alls bárust 16 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.978 m.kr. að nafnverði. 11 tilboðum var tekið fyrir 2.888 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 99,350 (5,11% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 17. apríl. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 18. apríl 2012. |
|||
|