2011-08-31 20:01:22 CEST

2011-08-31 20:02:24 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Ársreikningur

Árshlutareikningur Íbúðalánasjóðs 2011


Afkoma Íbúðalánasjóðs á fyrri árshelmingi 2011

Hálfsársuppgjör Íbúðalánasjóðs 2011 var staðfest af stjórn sjóðsins í dag.
Rekstur sjóðsins skilaði jákvæðri rekstrarafkomu um 1,5 milljarða króna
samanborið við tap upp á 1,6 milljarða á sama tíma í fyrra.  Breytinguna má
rekja annars vegar til bakfærslu á framlögum í afskriftasjóð þar sem um 5.000
umsóknir bárust um 110% úrræði stjórnvalda en gert var ráð fyrir 9.400
umsóknum. Þá hefur rekstrarkostnaður aukist á milli ára vegna fjölgunar
starfsmanna við úrvinnslu umsókna, umsýslu fasteigna og vinnu við fjárhagslega
endurskipulagningu leigufélaga auk þess sem mikill einskiptis kostnaður fellur
til við innlausn fasteigna. 

Eigið fé Íbúðalánasjóðs þann 30. júní 2011 var rúmir 10 milljarðar króna
samanborið við 8,6 milljarða í árslok 2010. Eiginfjárhlutfall sjóðsins sem
reiknað er samkvæmt ákvæðum í reglugerð nr. 544/2004 um Íbúðalánasjóð er nú
2,4% en var 2,2% í upphafi árs. Hlutfallið er reiknað með sama hætti og
eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja.