2009-03-23 18:04:33 CET

2009-03-23 18:05:33 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Íbúðalánasjóður kaupir skuldabréf tryggð með veði í íbúðarhúsnæði af Sparisjóðnum í Keflavík


Náðst hafa samningar milli Sparisjóðsins í Keflavík (SpKef) og Íbúðalánasjóðs
(ÍLS) um að SpKef selji ÍLS safn skuldabréfa, að fjárhæð um 10 milljarðar
króna, tryggt með veði í íbúðarhúsnæði í samræmi við heimild til slíkra kaupa
skv. lögum nr. 125/2008, reglugerð nr. 1081/2008 og reglur Íbúðalánasjóðs um
kaup á skuldabréfum fjármálafyrirtækja. 

ÍLS mun greiða 80% af uppreiknuðu virði safnsins með afhendingu íbúðabréfa sem
hér segir: 

•	Úr flokki HFF150434, bréf að nafnvirði kr. 1.033.936.941
•	Úr flokki HFF150644, bréf að nafnvirði kr. 4.846.955.385

Eftirstöðvarnar, eða 20%, er krafa SpKef á ÍLS sem kemur til með að verða gerð
upp að 8 árum liðnum. 

Til ársins 2010 er SpKef óheimilt að lána eða selja ofangreind íbúðabréf á
eftirmarkaði og einungis heimilt að nota íbúðabréfin í veðlánaviðskiptum við
Seðlabanka Íslands. 

Á árinu 2009 áskilur ÍLS sér rétt til að skipta ofangreindum íbúðabréfum út
fyrir íbúðabréf úr nýjum flokki íbúðabréfa sem stofnaður verður á árinu, 
þannig að uppreiknuð staða bréfanna  við skiptin jafngildi markaðsvirði
bréfanna úr flokkum HFF150434 og HFF150644 á skiptadegi. 

Kjósi SpKef að selja íbúðabréfin skuldbindur hann sig til að skipta sölu
bréfanna niður á 3 ár þannig að hámarksfjárhæð bréfa sem heimilt er að selja á
hverju ári, fyrst á árinu 2010, sé 1/3 af nafnverðsfjárhæð afhentra bréfa. 

Afhending íbúðabréfanna skv. samningi þessum fer fram á næstu tveimur vikum í
samræmi við afgreiðslu SpKef á hinum seldu skuldabréfum til ÍLS.