2008-08-27 17:01:41 CEST

2008-08-27 17:02:41 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Eyrir Invest ehf. - Ársreikningur

- Eyrir Invest - afkoma 1H 2008


Hagnaður að fjárhæð 298 milljónir króna varð af rekstri Eyris Invest á fyrri
hluta ársins 2008. Fjárhags- og lausafjárstaða félagsins er sterk.
Kjölfestueignirnar Marel, Össur og Stork skila á fyrstu 6 mánuðum ársins góðri
afkomu og horfur í rekstri félaganna eru góðar. 

Hagnaður Eyris Invest á fyrri hluta ársins 2008 nam 298 milljónum króna eftir
skatt.  Frá stofnun Eyris Invest á miðju ári 2000 hefur árleg hækkun á innra
virði hlutafjár numið 39,8% að meðaltali til samanburðar við 6% neikvæða árlega
meðalávöxtun heimsvísitölu MSCI fyrir sama tímabil, í báðum tilvikum mælt í
evrum. 

•  Heildareignir eru 58.300 milljónir króna

•  Eigið fé er 18.243 milljónir króna og reiknast eiginfjárhlutfall 31,3%

•  Lausafjárstaða félagsins er sterk og væri laust fé notað til endurgreiðslu
   skulda reiknast eiginfjárhlutfall 40% 

•  Allar skráðar eignir eru bókaðar á markaðsvirði og engir framvirkir
   samningar um hlutabréf eru opnir í lok uppgjörstímabils 

•  Meðalendurgreiðslutími lántöku er 3 ár

Eignasafn Eyris Invest er vel dreift á mismunandi atvinnugreinar sem allar eru
líklegar til að skila góðum og arðsömum vexti á næstu árum. 



Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:

„Við erum sátt við að skila lítils háttar hagnaði á fyrri hluta ársins við afar
erfiðar aðstæður á fjármálamörkuðum.  Mest um vert er að við höfum skilað góðri
ávöxtun í fortíð og höfum þolinmæði og styrk til að grípa þau tækifæri sem
kunna að myndast í náinni framtíð. 

Eyrir Invest er langtímafjárfestir í Marel, Össuri og Stork sem eru öll að sýna
góðan rekstur nú eftir tímabil mikils vaxtar.  Vöxtur félaganna hefur ekki
verið tilviljanakenndur heldur byggst á áralangri stefnumörkun sem miðar að því
að koma þeim í fremstu röð, hvert á sínu sviði. 

Marel, Össur og Stork eru öll fjárhagslega sterk og fjármögnuð til lengri tíma.
Horfur eru góðar í rekstri þeirra enda eru þau staðsett innan vaxandi
atvinnugreina sem eru að þjónusta matvæla- , heilbrigðis- og orkuiðnað”.