2022-05-24 19:23:25 CEST

2022-05-24 19:23:25 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar


Á aðalfundi Reita þann 11. mars 2022 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins.

Áætlað er að kaupa allt að 5 milljónir hluta sem jafngildir 0,66% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en samtals 525 milljónir kr. Framkvæmd áætlunarinnar hefst miðvikudaginn 25. maí næstkomandi og mun áætlunin vera í gildi þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 31. janúar 2023. Útgefið hlutafé Reita er 763.138.233 hlutir og eru 6 milljónir hluta í eigu félagsins við upphaf endurkaupaáætlunarinnar.

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi, hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er 445.792 hlutir sem var fjórðungur meðalveltu aprílmánaðar 2022.

Arctica Finance hf. mun framkvæma endurkaupaáætlunina fyrir hönd félagsins. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða með tölvupósti á einar@reitir.is.