2013-06-26 17:05:53 CEST

2013-06-26 17:06:54 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir II ehf. - Fyrirtækjafréttir

Reitir II: Fréttatilkynning frá Reitum fasteignafélagi hf.


Hópur lífeyrissjóða og Reitir fasteignafélag undirrita viljayfirlýsingu um kaup
lífeyrissjóðanna á nýju hlutafé og skuldabréfum Reita 

Á undanförnum mánuðum hafa Reitir fasteignafélag í samstarfi við
Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka unnið að endurfjármögnun félagsins. Viðræður hafa
átt sér stað milli Reita og Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna, Gildis-lífeyrissjóðs og Eignastýringar fagfjárfesta hjá Arion
banka, sem meðal annars er með eignir Frjálsa lífeyrissjóðsins og
Eftirlaunasjóðs atvinnuflugmanna í stýringu, um aðkomu þeirra að félaginu. Í
dag var undirrituð viljayfirlýsing um kaup þessara aðila á nýju hlutafé í
Reitum fasteignafélagi að fjárhæð 12 ma.kr. og nýjum verðtryggðum
skuldabréfaflokki að fjárhæð 25 ma.kr. útgefnum af félaginu. Kjör
hlutafjáraukningarinnar miðast við að tekjuberandi fjárfestingaeignir Reita
fasteignafélags séu metnar á 7,0% verðtryggðri ávöxtunarkröfu og skuldabréfin
verða seld á 4,0% verðtryggðri ávöxtunarkröfu. H.F. Verðbréf var ráðgjafi
lífeyrissjóðanna í samningaviðræðunum. 

Jafnframt hafa Reitir fasteignafélag náð samningum við Íslandsbanka um allt að
14 ma.kr. lánveitingu til félagsins á umtalsvert hagstæðari kjörum en núverandi
fjármögnun. 

Framangreind endurfjármögnun félagsins er háð viðunandi niðurstöðu í málefnum
Reita fasteignafélags, Seðlabanka Íslands og Hypothekenbank Frankfurt AG um
lánveitingu þess síðastnefnda til félagsins í erlendri mynt. Þá er fyrirvari
gerður við skjalagerð vegna útgáfu skuldabréfanna og lánveitingarinnar,
endanlega niðurstöðu áreiðanleikakönnunar á félaginu og samþykki stjórna
lífeyrissjóðanna sem og hluthafa og stjórnar Reita. 

Stefnt er að því að endurfjármögnun Reita fasteignafélags verði lokið fyrir
árslok 2013. Horft er til þess að skrá hlutafé félagsins á Nasdaq OMX á Íslandi
vorið 2014. 



Nánari upplýsingar veitir Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita fasteignafélags, í
síma 660-3320 og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri Reita fasteignafélags, í
síma 669-4416.