|
|||
2014-07-25 11:53:34 CEST 2014-07-25 11:54:35 CEST REGULATED INFORMATION Nýherji hf. - FyrirtækjafréttirLokað hlutafjárútboð til starfsfólks og stjórnarmanna NýherjasamstæðunnarÁ aðalfundi Nýherja hf. hinn 14. mars 2014 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að hækka hlutafé félagsins um allt að 150 milljónir hluta með sölu nýrra hlutabréfa sbr. 41.gr. hlutafélagalaga. Á stjórnarfundi þann 25. júlí 2014 samþykkti stjórn félagsins að auka hlutafé félagsins um allt að 10 milljónir hluta til að selja til starfsmanna og stjórnarmanna Nýherjasamstæðunnar í lokuðu útboði. Unnið er að útfærslu skilmála, sölufyrirkomulagi og tímasetningum en gert er ráð fyrir því að útboðið verði á þriðja ársfjórðungi 2014. Nánari upplýsingar verða sendar til kauphallar þegar niðurstöður útboðsins liggja fyrir. Nánari upplýsingar: Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja, í síma +354 862 0310 og Gunnar Petersen, framkvæmdarstjóri fjármálasviðs í síma +354 825 9001 |
|||
|