2012-11-28 21:14:53 CET

2012-11-28 21:15:54 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Ársreikningur

Árshlutareikningur Regins fyrstu níu mánuði ársins 2012


Árshlutareikningur Regins hf. 1. janúar til 30. september 2012 var samþykktur
af stjórn þann 28. nóvember 


  -- Rekstrartekjur Regins hf. á fyrstu níu mánuðum ársins 2012 námu 2.510
     milljón króna.

  -- Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir var 1.442 milljónir
     króna.

  -- Hagnaður eftir  tekjuskatt nam 1.304 milljónum króna. 
  -- Söluhagnaður nam 770 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2012.

  -- Vaxtaberandi skuldir voru 17.847 milljónir króna í lok september 2012
     samanborið við 19.163 milljónir króna í árslok 2011.
  -- Handbært fé frá rekstri nam 986 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins
     2012.

  -- Fjárfestingareignir í lok fjórðungsins voru metnar á 26.553 milljónir króna
  -- Eiginfjárhlutfall er 34%.
  -- Hagnaður á hlut á fyrstu níu mánuðum ársins 2012 var 1,04 samanborðið við
     0,05 árið áður.



Á tímabilinu var félagið skráð í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX Iceland hf.) að
undangengnu almennu útboði þar sem 975.000.000 hlutir í félaginu voru seldir.
Þessir hlutir samsvara 75% eignarhlut. Við skráningu félagsins var fjöldi
hluthafa 1083 og í lok september var fjöldi hluthafa um 980. 

Rekstur og afkoma

Afkoma Regins á fyrstu þremur ársfjórðungum ársins 2012 var góð og í samræmi
við áætlun félagsins. Rekstrartekjur námu 2.510 milljón króna og þar af námu
leigutekjur 2.080 milljónum króna. Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað,
matsbreytingu og afskriftir nam 1.442 milljónum króna eða sem nemur 69% af
leigutekjum. Sé litið framhjá 68 milljóna króna skráningarkostnaði þá er
rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir sem hlutfall af leigutekjum
73%, sem er í samræmi við markmið félagsins. 

Eignasafn og efnahagur

Eignasafn Regins samanstendur af fullgerðu atvinnuhúsnæði með háu
útleiguhlutfalli og traustum leigutökum. Í lok þriðja ársfjórðungs 2012 átti
Reginn 30 fasteignir. Heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins var 153 þúsund
fermetrar og þar af voru 132 þúsund útleigjanlegir fermetrar. Útleiguhlutfall
fasteignasafnsins var yfir 94%. Stærstu eignir Regins eru verslunarmiðstöðin
Smáralind í Kópavogi og Egilshöll í Grafarvogi. 

Á tímabilinu var fasteignin Sundlaugavegur 30a seld frá félaginu samfara sölu á
öllu hlutafé félagsins í Laugahúsum ehf. Söluhagnaður var 770 milljónir króna. 

Fasteignasafn Regins er metið á gangvirði í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla (IFRS). Safnið er metið í lok hvers árs í tengslum við
gerð ársreiknings og við matið er stuðst við núvirt framtíðar sjóðsflæði
einstakra eigna. Til að árshlutauppgjör félagsins endurspegli rétta afkomu
hverju sinni er í tengslum við árshlutauppgjör færð matsbreyting vegna þeirra
eigna sem eru með verðtryggða leigusamninga. Horft er á hverja eign fyrir sig
og verðmæti fasteignar borið saman við hlutfall verðtryggðra leigusamninga í
fasteigninni. Vegna verðhjöðnunar á tímabilinu er engin matsbreyting færð á
þriðja ársfjórðung, matsbreyting á fyrsta og öðrum ársfjórðung er 484 milljónir
króna. Matsbreytingar 2011 voru færðar í árslok. 

Framkvæmdir á vegum Regins hafa verið nokkuð umfangsmiklar á árinu.
Endurbygging á fasteigninni Borgartúni 33 hefur staðið yfir, en áætlað er að
framkvæmdum verði að fullu lokið í desember 2012. Borgartún 33 verður eftir
endurbyggingu hágæða skrifstofuhúsnæði um 3.300 m2 að stærð. 

Í Egilshöll lauk framkvæmdum við 22 brauta keilusal ásamt veitingastöðum,
rekstur hófst í september. 

Framkvæmdum við Brúarvog 1-3 lauk í sumar.

Horfur í rekstri

Stjórnendur félagsins telja að horfur í rekstri séu góðar og engar vísbendingar
eru um annað en að áætlanir félagsins standist. 

Félagið lauk við endurfjármögnun á Egilshöll ( Knatthöll ehf. og Kvikmyndahöll
ehf.) í október og fékk tilboð í endurfjármögnun Smáralindar
(Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf.) í nóvember. Áætlaður ávinningur félagsins
vegna endurfjármögnunar þessara þriggja dótturfélaga er um 160 m.kr. á
ársgrundvelli. 

Fyrirhugað er að síðasti áfangi endurfjármögnunar þ.e. uppgreiðsla lána og
endurfjármögnun eignasafns í Reginn Atvinnuhúsnæði ljúki á næstu mánuðum ef
aðstæður verða hagstæðar. 

Í október keypti félagið fasteignina Hafnarstræti 83 - 89, Akureyri sem hýsir
Hótel KEA. Samhliða var undirritaður leigusamningur við KEA Hótel ehf. um leigu
á sömu eign. Eignin er alls um 5.083 m2 að stærð. Í samræmi við
fjárfestingastefnu félagsins er unnið að skoðun ýmissa fjárfestingaverkefna. 

Um félagið

Reginn hf. er íslenskt fasteignafélag sem fjárfestir í, leigir út og annast
rekstur á atvinnuhúsnæði. Fasteignasafn Regins í lok nóvember telur 31 fasteign
og er heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins um 158 þúsund fermetrar og eru
yfir 94% leigjanlegra fermetra í útleigu. Stærstu fasteignir félagsins eru
verslunarmiðstöðin Smáralind í Kópavogi og Egilshöll í Grafarvogi. Félagið er
hlutafélag í dreifðu eignarhaldi og skráð í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX
Iceland hf.). Félagið tók til starfa vorið 2009. 

Á vef félagsins www.reginn.is/fjarfestar/arshlutareikningar er kynning á 9
mánaðar uppgjöri félagsins. 



Nánari upplýsingar veitir:


Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

Sími: 512 8900 / 899 6262.