2011-12-13 12:47:09 CET

2011-12-13 12:48:11 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 12 0315 OG RIKV 12 0615


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 12 0315 og RIKV 12 0615 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 12 0315:

Alls bárust 15 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 11.412 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 3.947 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,270 (flatir
vextir 2,91%). 

RIKV 12 0615:

Alls bárust 9 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.300 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 500 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,545 (flatir vextir
2,91%).