|
|||
2011-03-10 19:08:08 CET 2011-03-10 19:09:09 CET REGULATED INFORMATION Reitir II - ÁrsreikningurAfkoma Reita II á árinu 2010Tap Reita II ehf. (áður Landsafls ehf.) á árinu 2010 nam 627 milljónum króna samanborið við 4.450 milljón króna tap á árinu áður. Rekstrarhagnaður félagsins á tímabilinu nam 1.129 milljónum króna samanborið við 1.343 milljónir króna á árinu 2009. Horfur fyrir árið 2011 eru ágætar en vænta má að rekstur félagsins haldi áfram að vera í járnum. Lykiltölur: -- Heildareignir námu 21.130 milljónum króna þann 31. desember 2010 sem er lækkun um 102 milljón krónur á árinu. -- Eigið fé félagsins nam 3.222 milljónum króna á sama tíma. -- Rekstrartekjur ársins námu námu 1.632 milljónum króna samanborið við 1.743 milljónir króna á sama tíma árið áður. Reitir II á og rekur 18 fasteignir á Íslandi og er félagið í 100% eigu Reita fasteignafélags hf. Nánari upplýsingar um afkomu Reita fasteignafélags má finna á www.reitir.is. Nánari upplýsingar veitir: Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri Reita Sími 575 9000 einar@reitir.is |
|||
|