|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2017-09-03 13:39:17 CEST 2017-09-03 13:39:17 CEST REGULATED INFORMATION HB Grandi hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarAflaheimildir HB Granda fiskveiðiárið 2017/18Aflamark skipa HB Granda á nýhöfnu fiskveiðiári er samtals um 35.620 tonn ef miðað er við þorskígildi en um 46.100 tonn ef miðað er við úthlutun í einstökum tegundum. Þetta samsvarar um 9,5% af heildarkvótanum. Þetta er meðal þess sem lesa má úr úthlutun Fiskistofu á aflaheimildum fyrir fiskveiðiárið 2017/18 en vert er að taka fram að umrædd úthlutun tekur aðeins til botnfisks og íslenskrar sumargotssíldar sem úthlutað er innan fiskveiðiársins. Kvótum í deilistofnum, s.s. norsk-íslenskri síld, makríl, kolmunna, loðnu og úthafskarfa er úthlutað sérstaklega og hið sama á við um veiðiheimildir á þorski í Barentshafi. Nánar er hægt að sjá úthlutun veiðiheimilda til HB Granda í meðfylgjandi töflu:
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|