|
|||
2014-04-15 17:40:07 CEST 2014-04-15 17:41:07 CEST REGULATED INFORMATION Rangárþing ytra - ÁrsreikningurÁrsreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2013Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2013 var lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn þriðjudaginn 15. apríl 2014 og vísað til síðari umræðu og afgreiðslu í sveitarstjórn í samræmi við sveitarstjórnarlög. Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess. það er A og B hluta sbr. 60 gr. sveitastjórnarlaga nr. 138/2011. Í A hluta er starfsemi sem að hluta, eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Húsakynni b.s. og Suðurlandsvegur 1-3 ehf. Samkvæmt rekstrarreikningi 2013 námu rekstrartekjur A og B hluta 1.231,4 millj. kr. samanborið við 1.158 millj. kr. árið 2012. Hækkun milli ára er 6,3%. Rekstrargjöld A og B hluta eru laun, annar rekstarkostnaður og afskriftir sem námu samtals 1.038,3 millj.kr., en voru 1.017 millj. kr. á árinu 2012. Hækkun frá fyrra ári nemur 2,1%. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2013 námu 86,5 millj. kr. samanborið við 99,3 millj. kr. árið 2012. Rekstrarniðurstaða ársins er því jákvæð um 115 millj. kr. fyrir A og B hluta samanborið við 49,5 millj. kr. á árinu 2012. |
|||
|