2016-08-25 18:20:36 CEST

2016-08-25 18:20:36 CEST


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Vátryggingafélag Íslands hf. - Ársreikningur

Vátryggingafélag Íslands hf. - árshlutauppgjör


Árshlutareikningur fyrri árshelmings 2016

Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir fyrri helming ársins 2016 var
staðfestur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 25. ágúst
2016.  Reikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins. 

Helstu niðurstöður

  -- Hagnaður af rekstri nam 238 m.kr. samanborið við 1.419 m.kr. hagnað fyrir
     sama tímabil 2015.
  -- Samsett hlutfall var 104,8% en var 104,5% á sama tíma í fyrra.
  -- Tekjur af fjárfestingastarfsemi námu  636 m.kr. samanborið við 2.065 m.kr.
     2015.

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri

„Afkoma tímabilsins var undir væntingum bæði hvað varðar vátryggingastarfsemi
og fjárfestingastarfsemi.  Afkoma af vátryggingastarfsemi litast enn af því að
tap er af bæði frjálsum og lögboðnum ökutækjatryggingum. Vöxtur iðgjalda var þó
ágætur á fyrri helmingi ársins og hækkuðu innlend bókfærð iðgjöld um 11,6% frá
sama tímabili í fyrra.  Meðaliðgjöld hafa hækkað en einnig er um að ræða
aukningu viðskipta hjá núverandi og nýjum viðskiptavinum. Þá hefur félagið gert
samninga um að þjónusta kortatryggingar allra stóru viðskiptabankanna næstu 1-3
árin og nema ný iðgjöld vegna þeirra um 660 m.kr. á ári frá miðju ári 2016. 

Ávöxtun fjáreigna  nam 1,9% á fyrri helmingi ársins en 2,7% ef einungis er
litið til innlendra fjárfestinga.  Styrking krónunnar hafði neikvæð áhrif á
afkomu af erlendum eignum félagsins en félagið seldi nær öll skráð erelnd
verðbréf á fyrsta ársfjórðungi.“ 

Arðgreiðsla og eigin kaup

Aðalfundur félagsins sem haldinn var þann 16. mars s.l. samþykkti arðgreiðslu
að fjárhæð 2.067 m.kr. sem greidd var til hluthafa þann 15. apríl s.l.  Félagið
keypti eigin hluti fyrir 396 milljónir króna á fyrri hluta ársins og átti alls
um 2,2% af heildareiginfé í lok júní. 

Gjaldþolshlutfall í lok júní var 1,83.

Víkjandi skuldabréf – skráning á Aðalmarkað NASDAQ Iceland

Í lok febrúar gaf félagið út víkjandi skuldabréf að nafnverði 2.500 m.kr. en
útgáfa skuldabréfanna er liður í endurskipulagningu á fjármagnsskipan félagsins
og tilheyrir hún eiginfjárþætti 2.  Skuldabréfin voru tekin til viðskipta á
Aðalmarkaði NASDAQ Iceland hf. þann 29. júlí s.l. 

Horfur

Gert er ráð fyrir að áfram verði ágætur vöxtur í innlendum iðgjöldum á árinu og
gera áætlanir ráð fyrir að samsett hlutfall á árinu 2016 verði lægra en það var
á árinu 2015. 

Kynningarfundur

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn hjá VÍS í Ármúla
3, 5. hæð, þann 26. ágúst n.k. kl. 8:30. Þar kynnir Sigrún Ragna Ólafsdóttir
forstjóri VÍS afkomu félagsins og svarar spurningum. Kynningarefni fundarins
verður aðgengilegt að honum loknum á heimasíðu VÍS: www.vis.is 



Fjárhagsdagatal

Viðburður                                Dagsetning:

Annar ársfjórðungur             25. ágúst 2016

Þriðji ársfjórðungur           26. október 2016

Ársuppgjör 2016               23. febrúar 2017

Aðalfundur 2017                   16. mars 2017

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri í síma 560-5000 og
í netfangi fjarfestatengsl@vis.is.