|
|||
2016-08-25 18:24:34 CEST 2016-08-25 18:24:34 CEST BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Hampiðjan hf. - Annual report (is)Sex mánaða árshlutareikningur samstæðu Hampiðjunnar 2016Í upphafi ársins gekk Hampiðjan hf. frá kaupum á P/F Von í Færeyjum. Kaupin hafa mikil áhrif á samstæðuna enda P/F Von stórt og öflugt félag í framleiðslu og sölu á veiðarfærum og íhlutum þeirra ásamt framleiðslu á fiskeldiskvíum og annarri þjónustu við fiskeldi. Megin markaðir P/F Von eru Færeyjar, Noregur og Grænland en félagið starfar einnig í Danmörku, Íslandi, Kanada, Nýja Sjálandi og Litháen. Kaupin voru fjármögnuð með lántöku og sölu á hluta af eign Hampiðjunnar í HB Granda hf. Rekstur P/F Von kemur að fullu inn í samstæðureikning Hampiðjunnar frá áramótum. Lykiltölur Allar fjárhæðir í evrum og samanburðartölur í sviga. -- Rekstrartekjur jukust um 101% og voru 59,5 m€ (29,6 m€). -- Hagnaður fyrir fjárliði (EBITDA) var 8,5 m€ (4,7 m€). -- Hagnaður tímabilsins var 11,1 m€ (5,4 m€). -- Heildareignir voru 192 m€ (102 m€ í lok 2015). -- Vaxtaberandi skuldir voru 78 m€ (21,7 m€ í lok 2015). -- Eiginfjárhlutfall var 47% (69% í lok 2015). Rekstur Rekstrartekjur samstæðunnar voru 59,5 m€ og rúmlega tvöfölduðust eða um 101% frá fyrstu sex mánuðum fyrra árs. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var 11,3% af rekstrartekjum eða 6,7 m€ en var 12,5% fyrir sama tímabil á fyrra ári eða 3,7 m€. EBITDA félagsins var 8,5 m€ en var 4,7 m€ fyrir sama tímabil á fyrra ári. Hagnaður tímabilsins var 11,1 m€ en var 5,4 m€ sama tímabil fyrra árs. Efnahagur Heildareignir voru 192,1 m€ í lok tímabilsins. Eigið fé nam 90,2 m€, og er eiginfjárhlutfall samstæðunnar því 47% í lok júní. Vaxtaberandi skuldir námu í lok júní 78 m€ en skuldirnar í byrjun árs voru 21,7 m€. Hjörtur Erlendsson, forstjóri: „Reksturinn hefur verið mjög góður og framar vonum á flestum mörkuðum nema í sölu á ofurtógi á olíuiðnaðarmarkaði sem skýrist einkum af lækkun olíuverðs. Félagið réðst í mjög metnaðarfullt verkefni með kaupunum á P/F Von í Færeyjum. Kaupin styrkja félagið og gera því kleift að bjóða meira úrval veiðarfæra á fleiri mörkuðum og auka þjónustu við útgerðaraðila, sérstaklega við N-Atlantshaf. Þekking á fiskeldistækni er nú innan samstæðunnar sem nýtist öllum fyrirtækjum innan hennar. Á næstu árum mun síðan nást fram mikil samlegð í framleiðslu á veiðarfæraefnum og í innkaupum á vörum til veiðarfæraframleiðslu og endursölu.“ Reykjavík 25. ágúst 2016 Árshlutareikningurinn er á heimasíðu Hampiðjunnar hf. www.hampidjan.is. |
|||
|