2013-03-27 17:53:31 CET

2013-03-27 17:54:32 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Seðlabanki Íslands undirbýr setningu reglna á grundvelli laga um gjaldeyrismál, nr. 87/1992


Seðlabanki Íslands undirbýr nú setningu reglna á grundvelli laga um
gjaldeyrismál, nr. 87/1992, með síðari breytingum, og laga sem samþykkt voru á
Alþingi þann 26. mars sl., um breytingu á lögum um gjaldeyrismál nr. 87/1992.
Reglurnar varða meðal annars fjárfestingaheimildir erlendra fjármálafyrirtækja
og gagnaskil til Seðlabankans. Drög að reglunum verða send til
fjármálafyrirtækja í dag sem hluti af undirbúningi þeirra fyrir þær breytingar
sem reglurnar fela í sér varðandi gagnaskil til Seðlabankans. Reglurnar munu
ekki fela í sér breytingar á fjárfestingaheimildum frá því sem nú er.