|
|||
2014-05-06 11:37:30 CEST 2014-05-06 11:38:31 CEST REGULATED INFORMATION Landsbréf hf. - FyrirtækjafréttirLandsbréf - Frestun viðskipta með hlutdeildarskírteiniLandsbréf hf. tilkynna hér með að stjórn félagsins tók þá ákvörðun kl. 9.30 í morgun að fresta viðskiptum með hlutdeildarskírteini í þeim sjóðum Landsbréfa sem eiga skuldabréf útgefin af Íbúðalánasjóði. Er þessi ákvörðun tekin í ljósi ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins að stöðva viðskipti með skuldabréf útgefin af Íbúðalánasjóði. Sjóðirnir sem um ræðir eru: Landsbréf - Markaðsbréf Landsbréf - Eignabréf Landsbréf - Einkabréf B Landsbréf - Einkabréf C Landsbréf - Einkabréf D Landsbréf - Safnbréf 1 Landsbréf - Sparibréf stutt Landsbréf - Sparibréf meðallöng Landsbréf - Sparibréf löng Landsbréf - Sparibréf verðtryggð |
|||
|