|
|||
![]() |
|||
2016-02-24 09:55:39 CET 2016-02-24 09:55:39 CET REGULATED INFORMATION Fagfjárfestasjóðurinn REG 2 - ÁrsreikningurÁrsreikningur fagfjárfestasjóðsins REG 2 Smáralind vegna ársins 2015Fagfjárfestasjóðurinn REG 2 Smáralind sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013. -- Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á árinu samkvæmt rekstrarreikningi. -- Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi. -- Ársreikningurinn var endurskoðaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2015, efnahagi hans 31. desember 2015 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2015, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is Nánari upplýsingar um ársreikning REG 2 Smáralind veitir Flóki Halldórsson, í síma 444 7464. |
|||
|