2016-07-25 16:14:08 CEST

2016-07-25 16:14:08 CEST


Isländska
Vátryggingafélag Íslands hf. - Lýsing/tilkynning um birtingu lýsingar

Birting lýsingar


Vátryggingafélag Íslands hf. hefur birt lýsingu, sem samanstendur af
verðbréfalýsingu og útgefandalýsingu, dagsetta 20. júlí 2016. Lýsingin er birt
í tengslum við umsókn útgefanda um að skuldabréf þess verði tekin til viðskipta
á Aðalmarkaði NASDAQ Iceland hf. Lýsingin hefur verið staðfest af
Fjármálaeftirlitinu. 

Lýsingin er gefin út á íslensku. Útprentuð eintök af lýsingunni má nálgast á
skrifstofu útgefanda að Ármúla 3, 108 Reykjavík, í 12 mánuði frá staðfestingu
hennar. Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu útgefanda,
http://www.vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestar/. 

Gefin hafa verið út skuldabréf að nafnvirði 2.500.000.000 íslenskra króna og er
heildarstærð flokksins hin sama. Öll skuldabréfin hafa verið seld. Skuldabréfin
eru gefin út rafrænt hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð hf. í 20.000.000 kr. einingum.
ISIN númer bréfanna er IS0000026755. 

Skuldabréfin eru verðtryggð vaxtagreiðslubréf, gefin út til 30 ára með einum
gjalddaga höfuðstóls í lokin. Viðmiðunarvísitala er dagvísitala sem er reiknuð
út frá vísitölu neysluverðs á Íslandi (NEY), sem gefin er út af Hagstofu
Íslands. Grunnvísitala skuldabréfanna er dagvísitalan 29. febrúar 2016, sem er
428,46667. Skuldabréfin bera 5,25% fasta ársvexti, sem greiðast þann 1. mars og
1. september ár hvert, fyrst þann 1. september 2016 og síðast 1. mars 2046.
Vextir hækka um 1% (1 prósentustig) að liðnum 10 árum frá útgáfudegi
skuldabréfanna og verða þá 6,25% fastir ársvextir. Útgáfudagur skuldabréfanna
var 29. febrúar 2016. 

Vátryggingafélag Íslands hf. hefur óskað eftir því að skuldabréfin verði tekin
til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ Iceland hf. og mun verða tilkynnt um slíkt
með að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara. Óskað hefur verið eftir því að
auðkenni skuldabréfaflokksins í viðskiptakerfi NASDAQ Iceland hf. verði VIS 16
1. 

Stjórn Vátryggingafélag Íslands hf.

VIS 16 1 - Lysing.pdf