|
|||
2016-10-13 16:10:22 CEST 2016-10-13 16:10:22 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Reitir fasteignafélag hf. - FyrirtækjafréttirReitir og Kringlan semja við H&MReitir, Rekstrarfélag Kringlunnar og dótturfélag H&M hafa í dag undirritað leigusamning um verslunarrými fyrir verslun sem rekin verður undir merkjum H&M í Kringlunni en viðræður hafa staðið yfir sbr. fyrri tilkynningu sem finna má hér. Stefnt er að því að H&M opni verslun sína í Kringlunni fyrir lok árs 2017. Nánari upplýsingar veitir Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, í síma 660 3320. |
|||
|