2014-06-20 11:59:04 CEST

2014-06-20 12:00:05 CEST


Islandic
FÍ Fasteignafélag slhf. - Lýsing/tilkynning um birtingu lýsingar

Skuldabréf FÍ Fasteignafélags slhf. - Birting lýsingar


Útgefandi: FÍ Fasteignafélag slhf., kennitala: 571212-0210, Amtmannsstíg 1, 101
Reykjavík. 

FÍ Fasteignafélag hefur birt lýsingu sem samanstendur af samantekt dagsettri
19. júní 2014, verðbréfalýsingu dagsettri 19. júní 2014 og útgefandalýsingu
dagsettri 6. september 2013, eins og henni var breytt með verðbréfalýsingu
útgefanda, dags. 7. febrúar 2014 og uppfærð er í 8. kafla verðbréfalýsingar
dagsettri 19. júní 2014. Lýsingin er birt í tengslum við fyrirhugaða töku
viðbótarútgáfu skuldabréfa í skuldabréfaflokknum FIF 13 01 til viðskipta á
Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Lýsingin hefur verið staðfest af
Fjármálaeftirlitinu í samræmi við ákvæði laga um verðbréfaviðskipti nr.
108/2007. 

Lýsingin er gefin út á íslensku. Útprentuð eintök af lýsingunni má nálgast á
skrifstofu útgefanda að Amtmannsstíg 1, 101 Reykjavík í 12 mánuði frá
staðfestingu hennar. Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu félagsins,
http://www.fifasteignir.is/fi-fasteignafelag-slhf.html 

Nafnverð útgáfu

Útgefandi hefur safnað áskriftarloforðum frá fjárfestum fyrir 9.925.000.000
íslenskra króna í samræmi við ákvæði samþykkta og skilmála félagsins. Á
grundvelli fyrrgreindra áskriftarloforða skuldbinda fjárfestar sig til þess að
fjárfesta í i) hlutabréfum og ii) skuldabréfum útgefnum af útgefanda. Útgefanda
mun þannig vera heimil útgáfa skuldabréfa á grundvelli áskriftarloforðanna
fyrir allt að 7.940.000.000 íslenskra króna. Áður hafa verið gefin út
1.395.582.095 kr. að nafnvirði og viðbótarútgáfa nú er 832.887.565 kr. að
nafnvirði. Heildarfjárhæð nýttrar heimildar er því 2.228.469.660 íslenskra
króna. 

Áætluð taka skuldabréfanna til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf.

Sótt hefur verið um töku bréfanna til viðskipta samhliða útgáfu þeirra. Áætlað
er að NASDAQ OMX Iceland hf. taki til viðskipta seld skuldabréf að nafnvirði
832.887.565 íslenskra króna í fyrsta lagi þann 24. júní 2014. 

Skilmálar skuldabréfanna

Skuldabréfin eru verðtryggð með vísitölu neysluverðs og bera fasta 5,0% vexti.
Vextir greiðast fjórum sinnum á ári, 1. febrúar, 1. maí, 1. ágúst og 1.
nóvember, af verðtryggðum höfuðstól, en höfuðstóll greiðist á lokagjalddaga
þann 1. ágúst 2028. Útgáfudagur bréfanna var 20. júlí 2013. Fyrsti
greiðsludagur vaxta er 1. ágúst 2014. 

Auðkenni skuldabréfaflokksins

Auðkenni skuldabréfaflokksins í viðskiptakerfi NASDAQ OMX Iceland hf. er FIF 13
01, ISIN númer bréfanna er IS IS0000022770. Skuldabréfin eru gefin út rafrænt
hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. í 1. kr. nafnverðseiningum. 

Reykjavík, 20. júní 2014
Stjórn FÍ Fasteignafélags slhf.