2012-05-21 11:24:02 CEST

2012-05-21 11:25:03 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Fyrirtækjafréttir

Reykjavíkurborg - Útboð RVK 09 1 og RVK 19 1


Reykjavíkurborg hefur ákveðið í samræmi við útgáfuáætlun 2012 að efna til
útboðs í flokki RVK 09 1 og RVK 19 1 miðvikudaginn 23.maí. Reykjavíkurborg
stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 1.000 milljónir króna að nafnvirði.
Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð
útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. 

Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð bjóðast á sama verði.
Lægsta samþykkta 
verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð.

Flokkur RVK 19 1 er verið að bjóða út í fyrsta sinn. Bréfin eru verðtryggð
jafngreiðslubréf til 7 ára með 1,95% nafnvöxtum. 

Heildarstærð RVK 09 1 fyrir þetta útboð nemur alls 15.345 m.kr. að nafnvirði.
Flokkurinn hefur verið stækkaður um 830 m.kr. það sem af er árinu 2012.

Heimild til stækkunar skuldabréfaflokka Reykjavikurborgar á árinu 2012 er 6.230
m.kr. að nafnvirði. 

Uppgjör sölu fer fram þriðjudaginn 29.maí 2012.

Samkvæmt aðalmiðlarasamningi Reykjavíkurborgar við Íslandsbanka, MP Banka og
Straum fjárfestingarbanka, hafa aðalmiðlarar einir rétt á tilboðsgerð. 

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali:

Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321