|
|||
![]() |
|||
2014-08-13 13:45:00 CEST 2014-08-13 13:45:02 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 14 1117 og RIKV 15 0216Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 14 1117 og RIKV 15 0216 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 14 1117: Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.380 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 3.160 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,941 (flatir vextir 4,10%). RIKV 15 0216: Alls bárust 8 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.060 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 6.730 m.kr. að nafnverði á verðinu 97,887 (flatir vextir 4,20%). |
|||
|