|
|||
2009-08-27 18:31:11 CEST 2009-08-27 18:32:12 CEST REGULATED INFORMATION N1 - Ársreikningur- 6 mánaða uppgjör 2009Hagnaður N1 hf. fyrir tímabilið 01.01.2009 - 30.06.2009 er 474,2 millj. kr. eftir skatta. Veltufé frá rekstri nam 1.155 millj. kr. en var 1.148 millj. kr. fyrir sama tímabil á fyrra ári. Eigið fé félagsins er rúmlega 6,8 milljarðar þann 30.06.2009. Lykilstærðir í þús. kr: Sjá viðhengi Árshlutareikningur N1 hf 30.06.2009 Árshlutareikningur N1 hf. þann 30.06.2009 hefur verið staðfestur af stjórn félagsins og forstjóra. Árshlutareikningurinn er byggður á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS) og hefur samanburðarfjárhæðum verið breytt til samræmis við nýjar reikningsskilareglur. Rekstur Rekstrartekjur félagsins nema 17.215 millj. kr. samanborið við 19.706 millj. kr. fyrir sama tímabil árið 2008. Hagnaður fyrir afskriftir og leigugjöld nemur 1.897 millj kr. samanborið við 2.051 millj fyrir sama tímabil ári 2008. Rekstrarhagnaður tímabilsins nam 474,2 millj. kr á móti 98,3 millj. kr. fyrir sama tímabil árið áður. Fjármagnsliðir eru neikvæðir um 587,8 millj. kr. og voru einnig neikvæðir um 1.281,4 millj. kr. fyrir sama tímabil árið 2008. Eignir Bókfært verð eigna félagsins í lok tímabilsins nam 26.896 millj. kr. samanborið við 25.298 millj. kr. í árslok 2008. Fastafjármunir standa nánast í stað á tímabilinu og nema 12.290 millj. kr. lok þess. Veltufjármunir hafa aukist úr 13.039 millj. kr.í 14.607 millj. kr. Eigið fé Eigið fé þann 30. júní 2009 nam 6.835 millj. kr. samanborið við 6.361 millj. kr. þann 31.12.2008. Skuldir Í lok tímabilsins námu heildarskuldir og skuldbindingar 20.061 millj. kr, þar af námu langtímaskuldir 7.161 millj. kr. Staða og horfur Rekstrarhorfur út árið eru áfram erfiðar vegna óstöðugleika í efnahagsmálum. Kjarnastarfsemi félagsins hefur gengið vel á árinu og reiknað er með að afkoma ársins verði betri en árið 2008. Nánari upplýsingar veita Hermann Guðmundsson forstjóri og Elías Bjarni Guðmundsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 440 1000 |
|||
|