|
|||
2009-08-26 21:01:41 CEST 2009-08-26 21:02:41 CEST REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga - Ársreikningur- 6 mánaða uppgjör 2009Lánasjóður sveitarfélaga starfar sem lánafyrirtæki skv. lögum um fjármálafyrirtæki og skv. lögum um hlutafélög. Hlutverk sjóðsins er að tryggja íslenskum sveitarfélögum, stofnunum þeirra og fyrirtækjum lánsfé á hagstæðum kjörum til verkefna sem hafa almenna efnahagslega þýðingu. Sveitarfélögin bera ekki ábyrgð á skuldbindingum hans, en tryggingar fyrir útlánum hans eru í tekjum sveitarfélaga skv. 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, sbr. reglugerð um tryggingar Lánasjóðs sveitarfélaga í tekjum sveitarfélags nr. 123/2006. Helstu niðurstöður úr ársreikningum sjóðsins í m.kr. eru: Rekstur tímabils m.kr 1H2009 1H2008 1H2007 2008 2007 Hreinar vaxtatekjur 686 1.698 597 2.720 1.385 Aðrar rekstrartekjur -31 -495 115 -1.390 -97 Almennur rekstrarkostnaður 69 41 30 105 70 Hagnaður tímabilsins 586 1.163 682 1.225 1.219 30.jún 31.des 30.jún 31.des 30.jún Efnahagur í lok tímabils m.kr. 2009 2008 2008 2007 2007 Útlán 63.825 60.358 44.317 39.267 35.317 Aðrar eignir 4.540 3.598 4.800 2.466 3.622 Langtímaskuldir 54.947 51.025 35.430 29.255 26.422 Aðrar skuldir 1.558 1.658 2.476 2.430 3.049 Eigið fé 11.859 11.273 11.211 10.048 9.468 CAD-hlutfall Basel II 62% 57% 87% - - Afkoma lánasjóðsins á fyrri hluta ársins 2009 var í samræmi við væntingar og er tekjuafgangur 586 m.kr. á móti 1.163 m.kr. fyrir sama tímabil fyrra árs. Útlán sem fjármögnuð eru með eigin fé eru verðtryggð og þar sem hækkun vísitölu á fyrri hluta árs er lægri en á sama tímabili í fyrra skýrir það lægri afkomu nú samanborið við 2008. Vextir af þeim lánum hafa verið óbreyttir frá síðasta hausti 4,25%. Einnig var ávöxtun á lausu fé lægri en á sama tímabili á síðasta ári, en er þó góð miðað við efnahagsástand. Á tímabilinu var skuldabréf útgefið af SPRON fært að fullu niður í bókum sjóðsins. Sjóðurinn mun krefja skilanefnd um greiðslu skuldarinnar en óvíst er með heimtur. Sama á við um afleiðuskuld Glitnis banka við sjóðinn sem sjóðurinn hefur lýst í þrotabú bankans. Útborguð langtímalán á fyrri hluta ársins 2009 voru 4,9 ma.kr., samanborið við 6,3 ma.kr. á sama tíma árið 2008. Vanskil eru engin og hefur sjóðurinn ekki tapað útláni frá því að hann hóf starfsemi árið 1967. Á tímabilinu gaf sjóðurinn út skuldabréf að fjárhæð 6,5 ma.kr. á innlendum skuldabréfamarkaði. Eigið fé í lok tímabilsins var 11,9 ma.kr. á móti 11,2 ma.kr. um mitt ár 2008. Vegið eiginfjárhlutfall, svonefnt CAD-hlutfall, var í lok tímabilsins 62% samkvæmt hinum nýju Basel II reglum. Gert er ráð fyrir að hagnaður lánasjóðsins fyrir árið í heild verði svipaður því sem var síðastliðin tvö ár, en það mun aðallega ráðast af hækkun verðlags það sem eftir lifir árs og þróun skammtímavaxta. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 3. september 2009 í starfstöð sjóðsins, Borgartúni 30, 5 hæð. Óttar Guðjónsson framkvæmdastjóri og Magnús B. Jónsson formaður stjórnar munu kynna afkomu og efnahag sjóðsins ásamt því að svara spurningum. Kynningin hefst kl. 16:00. Nánari upplýsingar veitir: Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949. |
|||
|